Skólafólk, til hamingju með dag leikskólans

Dagur leikskólans á þjónustusvæði Skólaþjónustunnar

Hver leikskóli fór sína leið til að halda daginn hátíðlegan. Leikskólinn Örk á Hvolsvelli gaf út myndband

Leikskólinn Heklukot á Hellu er með myndlistasýningu í Miðjunni með yfirskriftinni „Leikskólinn minn“. Í vikunni verða Heilsuleikskólinn Kæribær á Klaustri og Mánaland í Vík með myndlistasýningu í leikskólanum og er sjón sögu ríkari.

Leikskólinn Laugalandi ætlaði að hafa afa og ömmu kaffi síðast liðinn föstudag en því var frestað vegna aðstæðna í leikskólanum.

 

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert síðustu fjórtán árin.

Sjötti febrúar á sér þó lengri sögu og merkilegri því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Orðsporið 2022

Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem eru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr í því að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og leikskólabarna.

Að þessu sinni hlaut leikskólinn Aðalþing í Kópavogi Orðsporið 2022.

Leikskólinn Aðalþing fær Orðsporið fyrir framsækið skólastarf og metnað er kemur að starfsþróun og umbótastarfi. Einnig hefur leikskólinn ráðist í mörg þróunarverkefni enda stefna skólans að vera rannsóknarleikskóli í fararbroddi.

Á leikskólanum er hátt hlutfall réttindakennara í starfsmannahópnum en undanfarin misseri hafa þeir verið á bilinu 50-60 prósent starfsmanna sem sinna uppeldi og menntun í leikskólanum. Meðalfjöldi réttindakennara við uppeldi og menntun í leikskólum landsins var 28% árið 2020. 

Í leikskólanum eru 120 börn á aldrinum eins til sex ára og starfsmenn eru um þrjátíu talsins. Leikskólastjóri er Hörður Svavarsson en eigendur Aðalþings eru dr. Guðrún Alda Harðardóttir og Sigurður Þór Salvarsson. 

Það voru þeir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla sem afhentu leikskólastjóra Aðalþings viðurkenningu síðastliðinn föstudag.

Þetta er í níunda skipti sem Orðsporið er veitt í tengslum við Dag leikskólans. Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, skóla og barnamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og heimili og skóli.

Frétt af vef Kennarasambands Íslands