Markmið með lögum um samþætta þjónustu er að öll börn (0-18 ára) og foreldrar þeirra, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Þeir sem veita börnum og foreldrum þjónustu fylgist með velferð og farsæld allra barna, bregðist við þörf fyrir þjónustu og hafi samráð sín á milli til að veita góða þjónustu við hæfi. Ekki er hægt að hafa samráð án undirritaðrar beiðni um samþætta þjónustu.

Samþætt þjónusta tekur til allra kerfa sem veita börnum þjónustu, hvort sem hún er veitt á vettvangi ríkis eða sveitarfélaga. Þjónustan er veitt á þremur þjónustustigum: 

  • 1.stig – er grunnþjónusta fyrir alla – snemmtækur stuðningur 
  • 2.stig – er markviss stuðningsþjónusta byggð á faglegu mati eða frumgreiningu 
  • 3.stig – er sérhæfðari stuðningsþjónusta í samræmi við ítarlega greiningu á þörfum 

Þegar barn er við nám í grunnskóla er tengiliður starfsmaður skólans þar sem barn er við nám. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu þjónustu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Ekki er hægt að veita upplýsingar án þess að undirrita Beiðni um samþættingu þjónustu“ 

Þegar foreldrar og/eða barn óska eftir að þjónustuveitandi miðli upplýsingum beint til tengiliðar án milligöngu foreldra þarf að undirrita „Beiðni um miðlun upplýsinga“.

Barn sem hefur þörf fyrir fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma fær málstjóra frá félagsþjónustu eða barnavernd. Hlutverk málstjóra er að veita frekari upplýsingar og ráðgjöf en tengiliður gerir og leiða samþættingu þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi. Málstjóri leiðir einnig stuðningsteymi. 

Stuðningsteymi er vettvangur þar sem þjónustuveitendur, og eftir atvikum þeir sem veita barni almenna þjónustu, eiga samstarf um samþættingu þjónustunnar. Stuðningsteymi gerir einstaklingsbundna stuðningsáætlun og fylgir henni eftir. 

 

Tilvísun: Mikilvægt er að fylla ítarlega út tilvísun og að öll umbeðin og nauðsynleg gögn fylgi með.

Áður, á meðan og eftir að unnið er úr tilvísunum veitir skólaþjónustan leiðsögn, stuðning og ráðgjöf.

Eyðublöð

Beiðni um miðlun upplýsinga

Miðlunarupplýsingar

Fyllist út af tengilið skóla

Matsblað fyrir tengiliði

Hjálplegir tenglar

Ný nálgun á þjónustu

Farsæld barna

Eyðublöð og leiðbeiningar

Barna- og fjölskyldustofa