Náms- og starfsráðgjafi hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu Laus er til umsóknar 100% staða náms- og starfsráðgjafa frá 1. ágúst nk. eða eftir samkomulagi
Á svæði skólaþjónustunnar eru u.þ.b. 550 nemendur í fimm grunnskólum. Hjá skólaþjónustunni er
áhersla á virka starfsþróun starfsfólks og vellíðan í starfi.
Starfssvið náms- og starfsráðgjafa, m.a.
- Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla.
- Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og markmiðssetningu.
- Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana.
- Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu einstakra nemenda.
- Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til einstakra nemenda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi á Íslandi.
- Samskipta- og skipulagshæfni.
- Stundvísi, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
- Kennslureynsla í grunnskóla æskileg.
- Góð færni í íslensku máli, jafnt ræðu sem riti.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir eru hvattir til að skoða heimasíðu www.vefur.skolamal.is eða hafa sambandi við Þórunni
Jónu Hauksdóttur, forstöðumann (s. 488-4231).
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi
í starfið. Umsóknir eiga að berast forstöðumanni á netfangið thorunnjona@skolamal.is