Er framúrskarandi kennari, verkefni og/eða menntaumbætur í þínu sveitarfélagi? Því ekki að tilnefna þau til íslensku menntaverðlaunanna? Nú er hægt að senda inn tillögur. Íslensku menntaverðlaunin 2023 verða afhent að Bessastöðum í nóvember næstkomandi og nú hefur verið opnað fyrir tilnefningar. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru í fimm flokkum:
  1. Framúrskarandi skóla- eða menntaumbætur, ein verðlaun veitt til skóla eða annarrar menntastofnunar.
  2. Framúrskarandi kennari, ein verðlaun veitt til kennara.
  3. Framúrskarandi þróunarverkefni, ein verðlaun. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- og frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum.
  4. Framúrskarandi iðn- og verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- og menntastofnun .
  5. Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem þykja hafa skarað fram úr.
  Tilnefningar skulu hafa borist fyrir 1. júní n.k.  Frekar upplýsingar og tilnefningarform eru hér: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/