Námskeiðsdagskrá veturinn 2022 til 2023
Fræðsludagskrá vetrarins hefur litið dagsins ljós. Hún er sett inn með fyrirvara um breytingar. Við hlökkum til að taka þátt í fræðslunni með ykkur í vetur.
Fræðsludagskrá vetrarins hefur litið dagsins ljós. Hún er sett inn með fyrirvara um breytingar. Við hlökkum til að taka þátt í fræðslunni með ykkur í vetur.
Upplýsingar | Dagsetning og tími | Staðsetning |
---|---|---|
-Kennsluhættir- Fræða ekki hræða Samtal um samskipti, mörk og kynfræðslu í grunnskólum. Góð kynfræðsla í grunnskólum er nemendum og samfélaginu öllu nauðsynleg. Með aukinni og árangursríkari kynfræðslu getum við skapað öruggara og opnara samfélag, bæði innan skólans og utan hans. Ræddar verða mismunandi leiðir til þess að nálgast þessi erfiðu og viðkæmu málefni. Steinunn Björg Hlífarsdóttir og Bæring J. Guðmundsson, kennarar í Laugalandsskóla. | September 2022 miðvikudagur28. september. kl. 14.45 | Fræðsla fyrir grunnskólakennara á Teams, Forskráning óþörf. Slóð verður send á skólastjóra til framsendingar, |
-Áætluð fræðsla fellur niður- | September 2022 miðvikudagur28. september. kl. 14.45 | |
-Skólastarf- Menningarlegur margbreytileiki – áskoranir og ávinningur Menningarlegur margbreytileiki – fjölmenning – er ný vídd í íslensku samfélagi. Í fyrirlestrinum er fjallað um hvaða áhrif menningin hefur á hugmyndir, samskipti, hegðun og tilveru fólks. Spurt er hvaða áhrif innflytjendur hafa á íslenskt samfélag, skólasamfélagið, vinnustaðinn og heimahérað. Síðast en ekki síst eru vangaveltur um hvað sé sérstakt við íslenska samskiptahætti, framkomu, menningu. Markmiðið er að gera þátttakendur meðvitaða um þær áskoranir, sem fylgja menningarlegum margbreytileika. Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir frá Mirru -Kennsluhættir-Skólastarf- Fræðsla til starfsfólks leikskóla um málörvun, kennsluhætti og leikskólastarf. Halldóra Guðlaug leikskólaráðgjafi fjallar um leikskólastarfið | Nóvember 2022 mánudagur 21. nóvember kl: 14:45. mánudagur 21. nóvember kl: 9:30-11:30 | Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur Staðfundur í Námsverinu á Hellu |
-Starfsumhverfi- Valdefling - öruggari samskipti Góð samskipti hvort heldur á vinnustað eða í einkalífi skipta sköpum fyrir vellíðan okkar í daglega lífinu. Í fyrirlestrinum verður rýnt í hugtakið valdeflingu og tengsl þess við jákvæða sjálfsímynd og áhrif þessara þátta á öruggari samskipti. Fjallað verður um “verkfæri” sem ýta undir valdeflingu og sjálfstyrkingu s.s. þjálfun í ákveðni, að setja mörk, markmiðssetningu, jákvætt hugarfar o.fl., allt saman þættir sem skila sér jafnframt í betri samskiptum. Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir frá Mirru -Kennsluhættir-Skólastarf- Fræðsla til starfsfólks leikskóla um málörvun, kennsluhætti og leikskólastarf. Halldóra Guðlaug leikskólaráðgjafi og Sigríður A. Þórðardóttir talmeinafræðingur | Janúar 2023 Miðvikudagur 25. janúar kl. 14:45 Miðvikudagur 25. janúar kl. 13:00-15:00 | Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur Staðfundur: Námsver Hellu. Umsjón: Sigríður A. Þórðardóttir talmeinafræðingur |
-Kennsluhættir-Skólastarf- Fræðsla til starfsfólks leikskóla um málörvun, kennsluhætti og leikskólastarf. Halldóra Guðlaug leikskólaráðgjafi fjallar um félags- og tilfinningaþroska -Kennsluhættir- Mannflóran Chanel Björk hefur haldið fræðslur frá því á árinu 2021 fyrir nemendur í grunnskólum, menntaskólum, starfsfólki á skóla og frístundasviði og einnig fyrir háskólanemendur og fyrirtæki. Fræðslan byggir á fræðilegri þekkingu svo þátttakendur öðlist skilning á grunnhugtökum eins og kynþáttafordóma, menningarfordóma, öráreiti, forréttindi og fleira. Dæmisögur úr eigin lífi Chanel og fólks af erlendum uppruna eru dregin upp til að þátttakendur skilji áhrif kynþáttahyggjunar á raunveruleika fólks af erlendum uppruna á Íslandi. Einnig er spurningum frá þátttakendum svarað og þátttakendur eru hvattir til að taka virkan þátt í opnum umræðum um viðfangsefnið. Chanel Björk Sturludóttir frá Mannflórunni | Febrúar 2023 Þriðjudagur 21. febrúar kl. 12:15-13:15 Miðvikudagur 22. febrúar kl 14:45 | Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur |
-Kennsluhættir-Skólastarf- Fræðsla til starfsfólks leikskóla um málörvun, kennsluhætti og leikskólastarf. Halldóra Guðlaug leikskólaráðgjafi fjallar um leik og nám -Kennsluhættir- Menningarfærni í menntun Í kynningunni verður fjallað um menningarfærni og hvernig er hægt að byggja á fjölbreyttri menningu og tungumálum í námi og kennslu. Rætt verður um menningarfærni í víðum skilningi, svo og hagnýtar leiðir, svo sem menningar- og tungumálamiðaða kennsluhætti. Dæmi verða tekin um slíka kennsluhætti í íslenskum skólum á mismunandi stigum. Hanna Ragnarsdóttir | Mars 2023 Þriðjudagur 21. mars kl 12:15-13:15 Miðvikudagur 22. mars kl 14:45 | Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur |
-Kennsluhættir-Skólastarf- Fræðsla til starfsfólks leikskóla um málörvun, kennsluhætti og leikskólastarf. Halldóra Guðlaug leikskólaráðgjafi fjallar um aðalnámskrá -Kennsluhættir- Hinsegin 101 Hinsegin 101 er grunnur að hinseginleikanum, þar er fjallað um kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni og kyntjáningu. Farið er yfir helstu grunnhugtök og orðanotkun tengda hinseginleikanum og fjallað um starf Samtakanna '78. Umræður og spurningar í lokin. Samtökin 87 | Apríl 2023 Þriðjudagur 25. apríl kl 9:30-11:30 Miðvikudagur 26. apríl kl 14:45 | Staðfundur í Námsverinu á Hellu Fjarfundur á TEAMS Tengill sendur þegar nær dregur |