Til hamingju með dag leikskólans og Orðsporið 2021
Leikskólar á þjónustusvæði Skólaþjónustunnar hafa í gegnum tíðina haldið upp á dag leikskólans með fjölbreyttum hætti. Í ár er engin breyting á, þar sem meðal annars var haldinn náttfatadagur, ruglufatadagur, myndlistasýning í fataklefum og sungið fyrir íbúa öldrunarheimila. Það er sannarlega mikil gróska í leikskólastarfinu hér um slóðir.
Til hamingju með daginn og Orðsporið.
Dagur leikskólans 2021 er með myllumerkið #dagurleikskolans2021.
Þann 6. febrúar nk. verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í 14. sinn, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á Dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið.
Í tilefni dagsins var Orðsporið veitt í áttunda sinn. Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem veitt eru þeim sem þykja hafa skarað fram úr í því að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og leikskólabarna. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, upplýsti á morgunverðarfundi RannUng 5. febrúar 2021 að handhafi Orðsporsins 2021 væri leikskólastigið. Í ávarpi sínu sagði hún meðal annars:
Leikskólastigið hefur staðið í ströngu undanfarið ár og mikið hefur mætt á kennurum, stjórnendum og öllu starfsfólki leikskólanna við að halda leikskólastarfi gangandi. Unnið hefur verið algjört þrekvirki á leikskólastiginu og fyrir það ber að þakka. Ég geri mér grein fyrir því að þetta hefur verið á tímum mjög erfitt. Þess vegna vil ég þakka öllum þeim sem starfa á leikskólastiginu fyrir þeirra vinnu. Þið eigið svo sannarlega skilið Orðsporið 2021.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra.
Látum Dag leikskólans verða okkur hvatningu til að kynna okkur það mikilvæga starf sem þar fer fram.