Gréta Helgadóttir

Gréta er leikskólaráðgjafi í leikskólum á þjónustusvæði Skólaþjónustunnar. Hún lauk BS prófi í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2015 og hefur starfsreynslu úr stoðþjónustu leikskóla og hefur sinnt og skipulagt sérkennslu.

Hún hefur sótt hagnýt starfstengd námskeið m.a. tengd jákvæðum aga, skimunartækjum, þroska og atferli barna og skipulagi sérkennslu. Skynjun og skynúrvinnsla ásamt aðlögun umhverfis eru henni hugleikin í námi barna. Gréta veitir ráðgjöf vegna einstakra nemenda og nemendahópa í leikskólum ásamt því að veita starfsfólki og foreldrum fræðslu og stuðning.