Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á grunnskólastigi. Starfsfólk félags- og skólaþjónustu starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Í sveitarfélögunum eru fimm grunnskólar. Íbúar eru tæplega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölbreyttar þarfir.
- Stuðningur og leiðsögn vegna fjölbreyttra og árangursríkra kennsluhátta með áherslu á snemmbæran stuðning.
- Stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf skóla, m.a. með ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk skóla.
- Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
- Vinna í þverfaglegu samstarfi félags- og skólaþjónustu.
- Leyfisbréf, staðfesting á réttindum til kennslu.
- Sérkennslufræði eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Reynsla af kennslufræðilegri ráðgjöf og/eða kennslufræðilegri forystu er kostur.
- Þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði.
- Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og leikni í mannlegum samskiptum.
- Hreint sakavottorð.