Náms- og starfsráðgjafi
hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Laus er til umsóknar 100% staða náms- og starfsráðgjafa
frá 1. janúar nk. eða eftir samkomulagi
Á svæði skólaþjónustunnar eru u.þ.b. 550 nemendur í fimm grunnskólum. Upplýsingar um skólana er að finna gegnum heimasíðu skólaþjónustunnar: www.vefur.skolamal.is
Starfssvið náms- og starfsráðgjafa, m.a.
· Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla.
· Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og markmiðssetningu.
· Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana.
· Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu einstakra nemenda.
· Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til einstakra nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Réttindi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi á Íslandi.
· Samskipta- og skipulagshæfni.
· Stundvísi, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
· Kennslureynsla í grunnskóla æskileg.
· Góð færni í íslensku máli, jafnt ræðu sem riti.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir eru hvattir til að skoða heimasíðu sem er í smíðum www.vefur.skolamal.is eða hafa sambandi við Þórunni Jónu Hauksdóttur, forstöðumann (s. 488-4231).
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2021.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir eiga að berast forstöðumanni á netfangið thorunnjona@skolamal.is.