Námskeiðsdagskrá veturinn 2021-2022
Námskeiðsdagskrá fyrir veturinn 2021 til 2022 lítur hér dagsins ljós á tenglinum hér neðst.
Einhver atriði á dagskránni hafa nú þegar verið framkvæmd önnur á eftir að setja inn. Námskeið fyrir leikskólastigið eru enn í vinnslu en munu koma inn á dagskránna þegar þau eru tilbúin.
Starfsfólk Skólaþjónustunnar hlakkar til að taka þátt í fræðslunni með ykkur skólafólki í vetur, gjörið svo vel
Upplýsingar | Dagsetning og tími | Staðsetning |
---|---|---|
-Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Staðkennsla) Skoða sjálfan sig sem stærðfræðikennara – styrkleikar og veikleikar Hvar vil ég bæta við mig þekkingu Að breyta – breytingarferli Þróunarhringurinn – skipulag og framkvæmd Að koma á samræðu og samvinnu milli nemenda – paravinna, hópvinna Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. | September 2021 7. og 8. september | |
-Skólastarf- Aðgerðir og fjármögnun: Menntun fyrir alla Í niðurstöðum úttektar Evrópumiðstöðvar á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi, sem framkvæmd var á árunum 2015-17, komu fram ábendingar um forgangsröðun aðgerða til að þróa skólastefnuna frekar hér á landi. Í þessu erindi mun Edda fjalla um hver staðan er á þessum aðgerðum með áherslu á niðurstöður úr tveimur skýrslum sem unnar hafa verið í kjölfarið. Edda Óskarsdóttir, lektor í Háskóla Íslands -Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Fjarfundur Zoom) Ræðum Þróunarhring 1 Hugtök í stærðfræði og notkun þeirra Orðadæmi – uppbygging og lausnaleiðir Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. -Kennsluhættir- Tvítyngdir nemendur Tví- og fjöltyngdum börnum hefur fjölgað mikið í grunnskólum á Íslandi. Meðaltalið í skólum á svæði skólaþjónustunnar er í sumum tilfellum hærra en landsmeðaltal. Hvernig vegnar þessum börnum í námi? Hvað geta kennarar gert til að styðja við þau í skólastarfi? Hvaða úrræði eru til staðar? Sigríður A. Þórðardóttir, talmeinafræðingur. | Október 2021 Þriðjudagur 5. október kl: 12-13 Þriðjudagur 19. október kl: 14-16 Miðvikudagur 20. október kl: 14:45 – 15:45 | Fjarfundur á Zoom Fjarfundur á Teams |
-Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Fjarfundur Zoom) Ræðum þróunarhring 2 Skimun – leiðsagnarmat – smánámskeið og lausnir í kjölfarið Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. | Nóvember 2021 Þriðjudagur 16. nóvember kl: 14-16 | Fjarfundur á Zoom |
-Starfsumhverfi- Bætt samskipti á vinnustað - TEAMS Á námskeiðinu er farið yfir hvað einkennir góð og slæm samskipti og fjallað um samskiptatækni, líkamstjáningu, virka hlustun, eiginleika góðra tengsla, áræðni og lausn ágreinings, meðal annars hvernig taka megi gagnrýni og ná sínu fram án þess að fótumtroða rétt annarra. Sóley Dröfn Davíðsdóttir forstöðusálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar -Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Staðkennsla) Ræðum þróunarhring 3 Opin verkefni Samræður - kennari - bekkur Hvernig stærðfræðikennari er ég - styrkleikar/veikleikar Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. | Janúar 2022 Þriðjudagur 18. janúar kl 14:45-15:45 Mánudagur 24. janúar kl 13-16 Þriðjudagur 25. janúar kl 13-16 | Fjarfundur á TEAMS tengill sendur þegar nær dregur Staðkennsla ATH. FRESTAÐ TIL APRÍL Mánudagur í Grunnskólanum Hellu fyrir: Laugaland, Hellu og Hvolsvöll. Þriðjudagur í Kirkjubæjarskóla fyrir Klaustur og Vík. |
-Foreldrafræðsla - Fjarfundur- Kvíði barna á aldrinum 6-10 ára Námskeiðsröð þar sem markvisst er fjallað um kvíða barna á aldrinum 6-10 ára. Foreldrar og aðstandendur barnanna mæta fjögur kvöld, tvo tíma í senn, í gegnum fjarfundabúnað. Lágmarksþátttaka er 20 heimili. Gjald fyrir námskeiðsröðina er 8.000,- pr. heimili. Elísa Guðnadóttir og Berglind Brynjólfsdóttir sálfræðingar á Sálstofunni -Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Fjarfundur Zoom) Ræðum þróunarhring 4 Að efla nemendur í að koma fram og kynna leiðir sínar Að verða stjórnandi stærðfræðikennslunnar - gerð kennsluáætlanna Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. | Mars 2022 Þriðjudagur 1. mars kl 19:30-21:30 Þriðjudagur 8. mars kl 19:30-21:30 Þriðjudagur 15. mars kl 19:30-21:30 Þriðjudagur 22. mars kl 19:30-21:30 Þriðjudagur 1. mars kl 14-16 | Skráning á skolamal@skolamal.is mikilvægt er að fram komi nafn/nöfn þátttakenda og kennitala greiðanda. Fjarfundur á Zoom. ATH ÞESSI FUNDUR VERÐUR EKKI FREKARI UPPLÝSINGAR ERU HJÁ TENGILIÐUM HVERS SKÓLA. |
-Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Staðkennsla) Ræðum þróunarhring 3 Opin verkefni Samræður - kennari - bekkur Hvernig stærðfræðikennari er ég - styrkleikar/veikleikar Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. | Apríl 2022 Þriðjudagur 26. apríl kl 13-16 Miðvikudagur 27. apríl kl 13-16 | Staðkennsla þriðjudagur í Grunnskólanum Hellu fyrir: Laugaland, Hellu og Hvolsvöll. Miðvikudagur í Kirkjubæjarskóla fyrir Klaustur og Vík. |
-Kennsluhættir- Stærðfræðilæsi (Fjarfundur Zoom) Lokauppgjör námskeiðsraðarinnar Stærðfræðilæsi, dagsetning auglýst síðar. Þóra Rósa Geirsdóttir, kennsluráðgjafi Gloppa sf. | Maí 2022 | Nákvæmari upplýsingar koma síðar |